{{lowercase title}}{{poem|'''afi'''
{{part|{{line|fyrir nokkrum vikum síðan}}{{line|þá birtistu mér í draumi}}{{line|þú sagðir: „minning mín er blessun í lífi ykkar“}}{{line|ég vissi samstundis að ég væri stödd í draumi,}}{{line|því þú hefðir svo sannarlega aldrei sagt neitt svona lagað}}}}
{{part|{{line|þú hefðir heldur glott heima í lazy boy stólnum þínum og spurt:}}{{line|„ertu komin með nýjan? og er hann sætur?“}}{{line|hefðir heldur staðið upp og kallað:}}{{line|„fáðu þér fiskibollur! það er til kaffi og kaka líka!“}}{{line|hefðir heldur öskrað í umferðinni,}}{{line|keyrandi hægar en ég í fyrsta ökutímanum:}}{{line|„farðu til fjandans, helvítið þitt!“}}}}
{{part|{{line|en þú hefðir líka brosað svo fallega þegar barn kæmi inn um dyrnar}}{{line|og þannig lét ég þig brosa í nokkrar mínútur}}{{line|alveg þangað til ég neyddist til þess að vakna}}{{line|með tárin í augunum}}{{line|með þig í huganum}}}}
}}
{{beinabrautin}}[[Flokkur:Ljóð]]