Articles:eftir fyrsta bitann

(Ný síða: {{poem| '''eftir fyrsta bitann''' {{part| {{line|þessi góða tilfinning sem umvefur þig þegar ekkert annað dugar}} {{line|minningarnar sem halda sjarma sínum sama hvað}} {{lin...)
 
(Enginn munur)

Núverandi breyting frá og með 10. júlí 2020 kl. 11:08

eftir fyrsta bitann

þessi góða tilfinning sem umvefur þig þegar ekkert annað dugar
minningarnar sem halda sjarma sínum sama hvað
og þær verða aldrei eins og þessi bros sem fölna á nokkrum sekúndum
eða máltíð sem missir bragðið
eftir fyrsta bitann
þetta er örugglega gæfan sem allir þykjast þekkja
þetta bara hlýtur að vera hún að glotta og kyssa þig á kinnina
þetta bara hlýtur að vera hún í líki stjarna sem þú getur séð þótt það sé skjannabjart úti og allir geti séð ójöfnurnar á húðinni þinni
ó, hve lengi ég hef beðið þín