Articles:das grüne herz

Útgáfa frá 10. júlí 2020 kl. 10:58 eftir Imba (Spjall | framlög) Útgáfa frá 10. júlí 2020 kl. 10:58 eftir Imba (Spjall | framlög) (Imba færði Das grüne herz á das grüne herz án þess að skilja eftir tilvísun)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Núverandi útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)

das grüne herz

ég segi öllum leigubílstjórunum það sama
hversu gott það sé að vera umkringd
svona mörgum trjám
„na ja... wo kommen Sie denn her?"
ég búi á íslandi
þar séu fá tré
vindur
og kuldi
þar sé ég alltaf nakin
sama hvað ég klæði mig
en hér geti ég gengið milli trjánna og dúðað mig í þeirri vitneskju
að maðurinn hafi alltaf verið ofmetinn
því sjaldan gæti hann svo auðveldlega
skotið rótum
og teygt sig til himins
samtímis