Articles:ég veit

ég veit

ég veit hvernig það er
að tala við einhvern seint um nótt
og vilja aldrei nokkurn tímann sofna framar
að ógna grunnþörfunum með kæruleysi ástarinnar
og trúa blint á að hún dugi þér fram eftir öllu
þráin sem dúkkar upp
óttinn að ekkert verði jafn ljúft og nákvæmlega núna
þar til hann lokar augunum
og hann veit það alls ekki
en hann brýtur í þér hjartað
og þú liggur þarna
brjáluð
brjálæðislega ástfangin